Paradís Auðar & Helga
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  11  Alls: 68367
12.11.2009 07:53:46 / Paradísarbúarnir!

VÁ! Það hefur ALDREI liðið svona langt á milli blogga hjá mér !

Halló halló !
Nei ég er ekki dáin ég er busy bee bsss... ;)
Lofa samt að það líður ALDREI aftur svona langt á milli blogga hehehe... :lol:

Vá svo mikið búið að gerast síðan síðast ég meina það er líka næstum liðnir 2 mánuðir ! :O shitta fokka beibí :!:
Hvar á ég að byrja jæja ... Tökum allavega aðalatriðin ;)

Ég er nottla búin að vera að vinna og vinna og allt bara ógó fínt í vinnunni fyrir utan nottla laaaanngar vaktir. Marr er hálfbúin á því eftir vinnuhelgi sérstaklega, vinn um 40 tíma aðra hvora helgi! :P puði puð en ekkert væl samt þetta er fínt ! Er bara ánægð að vera með vinnu :haha:

Fjarnámið gengur bara vel og ég er alltaf að fá fínar einkannir ;) fékk eina 5 en var líka eikkað að misskilja verkefnið :( kjáninn ég ... annars eru það bara 8, 9 og já 2 10 takk fyrir pennt ;) Núna fer að styttast í próf úff ... hef ekki farið í próf í bóklegu 4 years er pínu stressuð :P en ég massa þetta en ekki hvað !

Penny Lane er orðin svo stór !! Ég á ekki hvolp lengur ég á UNGLING hún er farin að hömpast á ljóninu sínu er nánast tannlaus :( greyið ... en er ánægð með snudduna sína ;) Og er farin að missa hvolpafeldin dísús hvað þetta líður hratt! Hún verður 6 mánaða núna 15 nóv ! Finnst ég ekki búin að eiga hana í 4 mánuði en svo er víst :D hún er ÆÐISLEG elska þetta litla dýr út af lífinu ! Það er svoooo skemmtilegt að koma heim úr vinnunni og fá þessa dillandi sætu rófu á móti sér :haha: love it!

Talandi um að tíminn sé að fljúga áfram þá var ég að átta mig á því að ég er að verða 23 ára eftir 12 daga !! :O OH lord hvert hurfu síðustu 3 ár ... það er sko klárlega satt að eftir 20 þá FLÝGUR tíminn !! Er að spá hvort marr eigi að halda eikkað upp á ammlið, er það málið ?! hmmm... við Rósa vorum jafnvel að spá í að gera eikkað saman en skvísan á ammli 27 nóv ;) :P læt ykkur vita um leið og eikkað verður ákveðið!!

Við Helgi nældum okkur í svínaflensuna og hún er ekkert grín :frown: ojjjbarasta 40 stiga hiti í 4 daga og vá við vorum veik ! Fór loksins til læknis þegar ég var farin að hósta blóði !!! Já ég fékk bronkitís ofan í svínið ! En svínið leggst víst á lungun og veldur bronkitís og lungabólgu þess vegna er hún svona hættuleg ! Láum steindauð í viku og hálfa ógeð!!! En er ógó fegin að vera búin með etta !!!

Annars fórum við á Flúðir í byrjun október þar sem ættleiddi sonurinn var að spila ;) Æðislegur bústaður með risa potti ;) ógó gaman!!! Ferð sem mun seint gleymast ! :haha:
Halloween var nottla um daginn mín var landamæra vörður en ekki hvað ;) ógó gaman ! Kíkti með Viktoríu minni á Broadway svo niðrí bæ ... spes, öðruvísi og nokkuð skemmtilegt kvöld hehe... :)

Mamma og Tengdamútta áttu svo ammli síðustu helgi og audda var mín að vinna :O týpískt ! En til hammó með ammó ladies :)

Er núna loksins komin á smá skrið í ræktinni byrjaði síðasta fimmtudag!! Allir voru komnir frá útlöndum og allir búnir með svínaógeðið nú verður sko tekið á því ! Erfiðast er samt að borða 6 sinnum á dag þá aðallega þegar marr er í vinnunni það er ekki beint holli staðurinn grillhúsið en ég reyni og marr hefur ekki alltaf tíma að borða 2 á dag hvað þá 6 sinnum :P en ég ætla að reyna að koma þessu í gang ! Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi svo er víst !! :D :haha:

Man ekki hvort ég var búin að segja ykkur það en ég var að kaupa mér nýjan bíl ;) Citroen C3 very næs :) er ýkt ánægð með hann! ;)

Er líka búin að vera að taka aðeins til í kringum mig og losa mig við æxlin hahaha sem sagt fólk sem er ekki að gera sig ! Er ýkt ánægð með þær ákvarðanir því að mér líður betur og það er ekki eins mikið drama og kjaftæði ;) þetta er víst eikkað sem ég mun alltaf vera að gera og marr er alltaf að brenna sig en þannig lærir maður víst. Þykir samt rosa vænt um þetta fólk og óska því alls hins besta í lífinu og vona innilega að þau finni sig og hamingjuna! Ég get bara ekki meira... verð að hugsa um sjálfan mig ... já ég er sem sagt búin að læra það að marr verður að elska sjálfan sig og vera soldið sjálfselskur! Setja mig í 1,2 og 3 sætið svo mega allir hinir koma ;) :D tók mig 22 ár en ég er loksins búin a læra etta !!

Það var nú ekki annað sem ég man eftir en ég lofa að vera duglegri að tjá mig hérna ;) hehe... Það verður mikið gert um helgina ! Klára að gera kósý heima finna hillur og svona, koma uppþvottavélinni í gang, læra, fara á ÁRSHÁTÍÐ TECHNO.IS UMEK!!! JÁ TAKK :)  og fleira ..

En þangað til næst gigidí gigidí alllriggght B)

Audíin & familí :haha: B)


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.09.2009 07:16:26 / Paradísarbúarnir!

Vinna, Læra, Vinna, Æfa, Vinna, Djamma, Vinna!

Svarið er JÁ! ég er alltaf að vinna hahahaha :lol: :haha:
Núna er þetta nú samt allt að komast á fínt ról og nú fer ég að vinna 15 daga mánaðarins og í fríi í 15 daga ;) Næææsss...

Er búin að vera að æfa með Rósu minni ;) Heiðrún hans Óla frænda að taka okkur í gegn ! En ekki hvað nú þíðir ekkert væl bara harkan sex og svínaflensa?? Já svo er víst Rósa sagði onk onk og Heiðrún varð allavega lasin ekki komnar fréttir um neitt onk ennþá ;) Það var svo sem ágætt er búin að vera að farast í bakinu :( já já krossleggið fingurna er að fara til doksa á miðvikudaginn tjékka á brjósklosi !! Halló ég er 22 NEI TAKK!!!! ég neita ...
Mín fór nú bara í staðinn í Salsa tíma í kvöld með Guðný skvísu ;) ógó gaman ! :D svo er það vonandi ræktin aftur á fullu eftir helgi :haha: ógó spennt !!!

KAMUI var að spila á Nasa á vegum TECHNO.IS of course ;) og við skelltum okkur til Bjössa og Evu í teiti svo fór Helgi slappur heim með Penny og við skelltum okkur að dansa á NASA og shitta fokka beibí hann var GEÐVEIKUR!!!! :haha:

Ernan Mín flutti svo til Færeyja á þriðjudaginn :( OH my Oh my hvað ég á eftir að sakna hennar !!! SHJiiiiiiiTTT 8|:cry: Vona samt að það sé gaman hjá þér skvísa mín ! ;) Hlakka til að fá þig heim :!: :haha:

Í kvöld var það familí dinner með Einari hérna heima ala Helgi ;) ógó gott ! Svo var það Salsa tíminn ;) og næst kíktum við á Dísu mína sem er flutt í bæinn ;) jeyj... og rétt hjá mér !!! :D Ég er strax farin að hlakka til lærdómskvölda hjá kellunni ;) :D

V
ar að koma heim frá Dísunni og núna er það kúrí kúr ;) Mikið að ske á morgun !!! NASA Zúúúber hjá syninum !!! :D  Jökull á ammli og allt að ske í einu ... eins og alltaf hahahaha :)

Hafiði það gott elskurnar :)

Auður, Helgi & Penny Lane B)


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.09.2009 03:09:43 / Paradísarbúarnir!

Byrjuð í ræktinni, vinna vinna vinna, byrjuð í Fjarnámi og var að kaupa mér nýjan bíl ;)

Halló halló hvað segiði þá?!
Ég segi sko allt GEGGJAÐ ;)

Margt búið að ske á síðustu 2 vikum :D

Kíkti nottla
með Viktoríu Englinum sjálfum á opnunina á Den Danske Kra til Pippu minnar :D mmm... shit Sommersby eplaseider er BESTUR !!! Luuuvvv it :haha: Þetta var ógó gaman en endaði já hmmm.... segjum bara að það hefði getað farið öðruvísi hahahaha....

28. var bálför hjá Ömmunni minni :P Sá meira að segja í karið hans afa :) þetta var bara mjög fallegt og gott að geta verið viðstödd en það gleymdist víst a láta mig vita fyrr en hálftíma fyrir og stelpan að vinna :O sem betur fer reddaðist það og ég náði :haha:

Hundagangan var svo á laugardeginum en stelpan svaf yfir sig :P kíktum samt aðeins niður í bæ fengum okkur pönnsur á Geysi mmmm... :P nammi namm Raggi átti svo ammli 35 ára kjellinn svo það var grill hjá tengdapabba ;) læri ógó gott!
Rúnar og Helena kíktu svo um kvöldið og við álpuðumst aðeins niður í bæ :) Ógó gaman !! En gat ekki tekið djamm þar sem mín var audda að vinna á sunnudaginn :P

Mín byrjaði svo í fjarnámi ;) er í fas í ensku og íslensku 303 ... byrja að klára það litla sem marr á eftir upp í stúdentinn :D Tók mér smá pásu frá hárgreiðslunni til að koma bakinu í rétt lag enda er marr byrjaður í ræktinni újeee... Við Rósa erum að massa okkur upp en ekki hvað ? :) Ógó gaman :haha:

Við skelltum okkur svo í mat til Ragga suðureftir á þriðjudaginn ;) Fajitas :p alltaf jafn gott. Við brunuðum svo í bæinn því að mín fór í bíó með Rósu á Karlar sem hata konur þetta er geggjuð mynd ! Vá mæli algjörlega með henni :)

Á Föstudaginn kíktu Rúnar og Helena á okkur og við höfðum það rólegt og ógó næs ;) En Rúnar skar af sér puttann á fimmtudaginn og var að sína okkur myndir úr aðgerðinni!! Já Hann var vakandi þegar hann var BORAÐUR saman puttinn! Kreppan hefur greinilega sitt að segja þegar marr er ekki svæfður lengur :O shitta fokka beibí ! Og já BTW einu verkjalyfin sem hann fékk var lyfseðill sendur upp á PARKÓDÍN 400 mg !! Halló maðurinn SKAR AF SÉR PUTTAN BEINIÐ OG ALLES!!! Ef marr er ekki svæfður og dópaður upp þá hvenær þá ?? Ja Marr spyr sig !!!

Penny mín er búin að fara í síðustu hvolpasprautuna ógó dugleg vældi ekkert ;) Á Laugardaginn síðasta kíktum við svo aðeins til kef á ljósanótt ;) og á Dóru og Sigga og mín keypti lítin bleikað flísgalla á Mz. Penny Lane, tösku, Hermannavesti og fengum svo geggjaða peysu með hundahauskúpu á bakinu ;) shæse hvað mín er sæt í þessu! Penny er líka bara að fíla það vel ;) :haha:

Um kvöldið var svo Kveðjumaturinn hennar Ernu ;) Við Hooligans ásamt nokkrum vel völdum ;) hehe fórum á Lækjarbrekku :P bara næs svo var planið að fara á 2 unlimited en það fór ekki svo ...
Raggi greyið þurfti að koma í bæinn og láta sprauta sig niður uppá spítala út af vöðvabólgu :O 8| Jájá Raggi er sprautaður niður og dópaður upp af lyfjum út af reyndar massívri vöðvabólgu slíkt hefur bara varla sést, en COME ON Rúnar fékk EKKERT !! Hmmm .... þetta er umhugsunarefni.

Eva og Bjössi kíktu svo og við svo til þeirra ógó skemmtilegt og næs kvöld Takk fyrir kvöldið krakkar :D Verðum að gera þetta oftar!

Mín fékk svo fyrstu einkunnina sína í byrjun vikunnar ;) Málfræðipróf í ensku 8 ;) :haha: woohooo :)
Það er svo bara búin að vera vinna svo æfing í morgun ;) læri læri tækifæri og já A-list gellan keypti sér nýjan bíl ! ;) Citroen C3 ;) ógó fínn ;) er ýkt ánægð með hann!

Núna er það að fara að lúlla ZZzzzz æfing í fyrramálið svo klippí klipp og tengdó að koma í heimsókn ;)

Until next time

Audíin 8)



» 1 hafa sagt sína skoðun

27.08.2009 01:23:32 / Audur

Busy Little Bee SssssSSsssSsss. . .

Síðustu tveir dagar hafa verið busy busy busy ..

Í gær byrjaði mín á því að taka aukahádegisvakt í vinnu suprise suprise hehe... :lol: Svo fórum við að hjála Jón Mar og Rósu að pakka ... og flytja .... En kjellinn fór til Svíþjóðar í morgun :) have Fun :haha: Þín verður nú samt saknað hér á klakanum :!: Svo kíktum við á Sveinbjörn og Heiðbjörtu sem var svo dugleg að leika við Penny ;) og fékk það meira að segja smá hehe...
Joggi og Einar kíktu svo í síðbúna heimsókn :haha: ógó gaman :D

Í dag var ég líka á aukahásdegisvakt svo kom Valtýr í klippó ;) og svo var það loksins loksins RÆKTIN já við Rósa ætlum sko að vera HEAVY FINE um Jólin :D FLY Chicas :) Haukur kútur kíkti svo í mat til okkar :!: mmm... kjúklingabringur í piparostasósu með sveppum nammi namm :P
Fyrsta Hundaplaydate Penny var svo eftir mat en Helena skvís kom með Ninja Mini Pinna tík og svo 3 mánaða lúkasarvoffa sem heitir Alex og mamma hennar á. Sama hvað hver segir mér fannst þetta alltaf ljótir hundar en hann var heavy sætur :haha: :haha: Penny var nú ekkert mikið fyrir það að fara að leika.. nei nei urraði bara og var með afrýðisemi þegar mamma sín fór að klappa hinum voffunum hahaha... :lol: mömmu stelpa :!: :lol: :D
Haukur , Joggi og Einar voru svo í heimsókn að halda Penny & Helganum company á meðan að A-list gellan kíkti á Brynju mína á Danska Barinn ;) :D

Svo er það back 2 work á morgun ;) 13 tíma takk fyrir :D

Well until next time

Audi 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.08.2009 05:59:47 / Paradísarbúarnir!

Næstum því allt reddí orðið heavy kósý !

LOKSINS LOKSINS :!: :!: :!:
Við erum orðin nettengd heim ;)
Kominn í samband við umheiminn, komin þörf á því þar sem að marr er búin að vera mest megnis í vinnunni :)

Jæja aðalfréttirnar eru náttúrulega þær að við vorum að byrja að leigja ;) Kíkti á barnaland og fékk lyklana 2 dögum seinna :haha: Þetta gerðist allt svo ótrúlega hratt :P Og er samt búið að taka geðveikt langan tíma að koma okkur almenninlega fyrir þar sem að mín er búin að vera í vinnunni stanslaust :!: Það er gott fyrir budduna en ekki gott fyrir flutningana hehe :lol:

Við erum í sætri og bjartri risíbúð í Eskihlíðinni ;) ótrúlega góður andi og okkur líður mjög vel hérna. Náðum að flytja allt stóra dótið strax en vorum í rúman mánuð að finna sófasett :P Ma & Pa fundu loksins GEGGJAÐ þæginlegt sófasett á útsölu í HABITAT. 75 þúsund fyrir 3 sæta sófa og stól :D

Mamma og pabbi eru búin að hjálpa okkur geggjað mikið ... gáfu okkur 6 boðstofustóla, allt innbúið í eldhúsið, dót inn á bað og næstum helming í sófasettinu. :haha: Hvað marr gerði án þeirra veit ég ekki I love you guys :d ;)

Erum núna bara að bíða eftir hillum ;) þá getum við klárað að hengja upp myndir og koma okkur endanlega fyrir :haha: GET EKKI BEÐIÐ :haha:

Aðrar stórfréttir eru þær að við erum búin að fá okkur lítin sætan Voffa ;) Hún er chiuaua frá Svenna frænda :haha: Hún er það sætasta sem ég veit um og við elskum hana svo mikið ... Hún heitir Penny Lane og er algjör díva, mesti snirtipinni finnur allskyns dót í bælinu hjá henni og neitar að fara út í rigningu hehehe ... Veit ekki um meira kúrudýr og algjör mömmustelpa :!: Búið að vera ÆÐISLEGT að koma heim eftir vinnu og sjá þessa litlu sætu rófu dillandi á fullu og fá knús og koss ;) awww best í heimi :!: Mamma sem er nú ekki mesta hundakonan er farin að segja henni að koma til ömmu hahahaha :) :lol: :lol: :lol: Snilld ;) 8)

Hér eru búnir að vera miklir heimalingar frá því að við fluttum inn og margt búið að ske ... Soldið djamm ;) :D því verður ekki neitað hehe ...

Langverst var þó að hún elsku besta amma mín lést :( Ég var hjá henni allan tímann þar til yfir lauk og átti ýkt bágt. Við vorum orðnar svo nánar eftir að afi fór. En ég á yndislegar minningar og sakna hennar mikið. Nú á mín Enga Ömmu og engan Afa eftir :( Hvíld í friði amma mín ég elska þig :* :* :*

Verslunarmannahelgin var tekin með stæl upp á Sveinstöðum eins og fyrri ár (síðustu 3 ;) Þar var grillað Nauta T-bone steikur með bernaise ala Grillhúsið í góðra vina hópi ;) Djö'll var gaman, fengum þetta æðislega veður líka 8)

Núna er ég búin að vera í smá vinnutörn sem líkur núna á föstudaginn :P Brjálað stuð ... Svo LOFA ég að það fer að koma að innflutningspartý ;) :) :D

Jæja nóg í bili ;)

Það verður ekki svona langt í næsta blogg :hehe:

Kv,

Paradísarbúarnir: Auður, Helgi & Penny Lane 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.07.2009 11:17:00 / Paradísarbúarnir!

Hvað er ekki búið að ske...

Vá svo langt síðan að ég bloggaði síðast ég biðst formlegrar afsökunar við vini og vandamenn erlendis ;) hehe...
En málið er það að við vorum að flytja í hlíðarnar í litla sæta risíbúð :) og erum ekki kominn með netið :( en þetta fer allt að ske og þá kem ég með eina langa og góða ritgerð :) hehe...

Fjárfesti í 1 stk sófasetti í gær ;) 3ja sæta og stól ógó þæjó :D Hann er væntalegur heim í dag svo allir að krossleggja fingurnar um að hann komist upp :) ;)
Er að vinna núna EN EKKI HVAÐ :D og hlakka mikið til að koma heim í kvöld og leggjast í sófann minn :)

Þangað til næst :) 8)

Audíin 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.06.2009 01:12:43 / Audur

Vinna Vinna Vinna ;)

Öss hvað það er gaman að vera komin með vinnu ;) Jeyj ... er að fíla mig í botn og búin að vera að vinna stanslaust núna síðustu viku :D Er sem sagt farin að vinna á Grillhúsinu Tryggvagötu :!:

Erum búin að vera eins og heimalingar hjá Sveinbirni og Láru í nýja pleisinu hehe... Rosa næs ;) Flakkarinn minn orðin fullur af nýju dóti nú fer maður að horfa á TV og hafa það næs hehe...

Var í fríi í dag og gær ;) Afi minn hefði átt ammó í gær :) svo við skelltum okkur familían uppá Sveinstaði að grilla svona í tilefni dagsins :)

Í kvöld skellti ég mér á skókynningu hjá Elvu minni og keypti mér geggjaða skó :D ógó þæginleg stígvél ! Er búin að ákveða að halda eina svona sjálf :haha: í byrjun næsta mánaðar ógó gaman :D :D 
Við fórum líka að skoða íbúð í hlíðunum ;) já við erum að kíkja á leigumarkaðinn :!: Vel komin á tíma hehe... 
 
TOMCRAFT er svo á laugardaginn get ekki beðið :D shitta fokka beibí það verður ógó gaman :!: :D :haha: 8)

Vinna svo á morgun og hinn og líklegast sunnudaginn :P Ógó dugleg :D

Jæja ætla að fara að nýta flakkarann minn ;)

Kv.
Auður 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.05.2009 23:43:59 / Paradísarbúarnir!

Náði !!! B)

Sól Sól skín á mig ;)
Ohh síðasta vika hefur verið ÆÐISLEG :!: :!: 8) Vona að þetta verði svona mest megnis í sumar, þá ætla ég sko að njóta lífsins upp í bústað á frídögum ;) újee...

***

Sjúkraprófsdagurinn tók nett á enda var ég mætt fyrst hálf 9 og farin síðust út kl. 16. Veit það núna að mín náði öllu. ;) jeyj ... svo verður tekið almenninlega á því næstu önn! Verð að koma bakinu í lag í sumar :) Varð nú að fagna próflokunum almenninlega svo við kíktum á English Pub :!: Felt a little bit like old days :) Good times good times :)

###


Það tók okkur 10 ár en okkur tókst það 2 sætið í eurovision :!: Horfðum á það hjá Sveppó og Láru :haha: LOKSINS að þetta varð eikkað spennandi hahahaha :lol: ok það var spennandi að vita hvort við yrðum í 2 eða 3 ... Sigurinn var annars frekar gefinn hahahaha :haha:

Skellti mér svo aðeins á Jacobsen að dilla mér :D ;)

***

Já og bara til þess að nefna það þá erum við MEISTARAR:!: :haha: Go Man. UNITED :D :haha:

Planið okkar annars í sumar er að njóta þess í botn ;) Vinna af mér rassgatið ;) og vera upp í bústað að grilla með góðum vinum og bara njóta þess að vera til :D 8) Hlakka ótrúlega mikið til :D Good times :!:

###

NATASCHA mín útskrifaðist í dag!! TIL HAMINGJU ÁSTIN MÍN :!: Er ótrúlega stolt af þér :D  ! See ya 2 morrow :!:
Svo styðja nottla allir Lexuna :!: Ungfrú Ísland :!:  Langflottust :D :haha: Tekur etta beibsa :!:

Jæja er farin að kúra mér
Audíin 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.05.2009 18:31:26 / Audur

Shitta fokka beibí dj. Oculus er BRILL!!!

What's Cooking Good Looking ?! 8)

Því miður er staðan hjá mér sú að ég á 3 próf eftir :P fékk líka svona svaðalega inflúensu 40 stiga hita í eikkura daga :!: :O ógeðslegt ... er svona rétt að ná mér. Náði að drullast í próf á fimmtudaginn :!: :haha: Búin að ná öllu sem ég hef tekið... Svo eru það 3 próf núna á fimmtudaginn Gala, Klp og Lit og perm :P

Kíkti aðeins út um helgina maður mátti bara ekki sleppa Jacobsen á laugardaginn ;) DJ. Oculus er nú meiri snillingurinn ! Shitta fokka beibí hann er GEÐVEIKUR :!: Ætlaði að tapa mér í dansinum vá ... geggjað :!: :haha: 8) 
 
*** *** ***

Sveinbjörn og Lára buðu okkur í mat í gær... pasta ógó gott ;) Very næs i kvöld er svo kreppubíó ;) hvað á marr að sjá ... hmmm ... kemur í ljós ... Annars verð ég nú bara að hafa orð á því hvað ég þoli ekki fólk sem hefur fyrir því að commenta en skilur eftir ekkert nafn og comment sem meika EKKERT sens:!: Vá sleppiði því frekar, ef þú getur ekki staðið undir því sem þú segir undir nafni don't bother þoli ekki svona aumingjaskap :) :D be a man come on hahahaha .... og já commentaðu eikkað sem skilur for the love of god ! :haha: :lol:

Well er farin að eta
þangað til næst :) :P

Audíin 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.04.2009 16:13:33 / Audur

Úglönd ;) Vestmann Islands ;)

GLEÐILEGT SUMAR :!: :!: :!: 8)

Ég byrjaði á því að fagna sumrinu með Krístínu & Írisi á Playboy kvöldi ;) hehe ... ógó gaman :!: Dansaði af mér rassinn ;) :haha:

Við tók svo ferð til Þorlákshafnar:!: Jói minn takk fyrir farið :D Og þaðan af tók við HELVÍTI "$#%%&&"#( Shitta fokka beibí eða eins og sms sem Viktoría fékk ÉG HATA ÞIG :!: Ég ældi stanslaust ... Hefur ALDREI liðið svona illa á minni ævi ... verstu 2 tímar lífs míns (svaf sem sagt í klst. ) Var GLÆR og búin á því þegar að ég kom :!: svo ekkert var gert það kvöldið :P barf ... :P 

Vaknaði nú seint og síðar meir og fór og kaus í fyrsta skiptið :!: og já það er LEYNDÓ ;) hehe en ég segi eitt ég kaus EKKI sjálfstæðisflokkinn :!: Já eyjamenn elska XD svo mikið að því var blastað upp á Heimaklett á föstudagskvöldið :P sæll ...
Viktoría eldaði borgara ofan í mig.. hún er svo góð! :D Við tókum svo Singstar þar sem nágrannarnir voru áhorfendur hahaha :haha: :lol: skelltum okkur svo á Lundann með Eyjapæjunum mínum Lexu & Hafdísi ;) en þar voru Dalton að spila :P Svo við skelltum okkur fljótt á Volcano þar sem Einar Ágúst tróð upp :D og djö'll var gaman :!: ;)

Laugardagurinn var nú pínu letidagur... vorum bara hjemme Gugga skvís kíkti á okkur. Svo tókum við nap og alles ;) kósý ... Viktoría fékk svo smá makeover ;) klippingu :haha: Svo var fancy smancy kvöld sem byrjaði með teiti hjá Hafdísinni ;) ógó gaman og svo Einar Ágúst á Volcano :!: Það var ótrúlega gaman ;) þangað til... hehehehe nei nei það var bara ógó gaman ;) :) Mikið til að hlæja að það get ég sagt ykkur :!:

Flaug svo heim á hádegi á sunnudaginn:!: Jú ég átti miða í herjólf en ég var ekki tilbúin að faðma stellið aftur ... var enn með harðsperrur í lófanum eftir síðasta hitting :P :( svo ég tók flug :haha:

Annars eru pófin að byrja og brjálað að gera hjá mér :!: :O :haha: Tók fyrsta prófið í dag blástur ... svo eru 2 á morgun formblástur og LOL :P svo öll næsta vika þá er ég búin :D :!:

Þangað til næst ;) 8)
Audíin 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.04.2009 16:24:07 / Paradísarbúarnir!

Aprílgabb ;) Páskar og Lærdómur!

Aprílgabb ársins ;)
Ég hef aldrei verið mikið fyrir aprílgöbb aðallega vegna þess að mér dettur ekkert í hug hehe ;) en þetta árið stal ég aprílgabbi af Anný minni :!:  Ég postaði sónarmynd á facebook :) hahahaha :lol: Viðbrögðin voru ekki lítil, símtöl, comment og já símtöl frá útlöndum líka :D hehehe ... ógó fyndið :!:

*** *** ***
Páskarnir byrjuðu ekki skemmtilega flensa.is Fékk hóstasaft og leið eins og smákrakka það var svo vont :P A Spune full of sugar makes the medicine go down ;) 
Fékk svo draumahöllina mína og ákvað að slaka á þar yfir páskahelgina ;) Æfði mig í Galagreiðslu, teiknaði og tók svo alsherjar arty farty kvöld með Anný :D :haha: Hún gaf mér fyrsta strigann minn :) takk ástin mín þetta var ÆÐISLEGT kvöld :D 
Tók svo Sætunbauna sunnudags skemmtun ;) Shæse það var allt crazy á Jacobsen totally the place to be :haha:

###

Síðustu Helgi höfum við Paradísarbúarnir bara haft það kósý yfir vidjó og sofa snemma ;) Já trúi þið því ALLA HELGINA :haha: Er svo bara búin að vera að læra, æfa galagreiðsluna f. próf, gera verklýsingar og finna prófmódel !!! Og í pásunum frá læri lær þá er mín að taka til í herberginu ;) dugnaðarforkur I know. En well tími til kominn að halda áfram :P

Audíin  8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.03.2009 19:35:39 / Audur

SSS

S S S
1, 2 SELFOSS :!:
Skítamórall á Nasa:!:
Sailors :!:

A-list gellan var allstaðar í gær :haha: Kvöldið byrjaði með valkvíða því of mörg einstök tækifæri í boði í einu. Öðru megin var ég með Technoball með Exsos & Tweak á Bar 800 á SELFOSSI. Þið sem þekkið mig vitið að ég fer ALDREI úr Reykjavíkinni minni :!: City Girl :!: 8) Svo það varð spennó að fara nú út fyrir kassann og gera eikkað gjörsamlega nýtt ;) Á hinn bóginn eru Skímó ekki beint að spila hverja helgi :P og það líka ótrúleg Nostalgía í gangi :!: Fortíðarþrá eða framtíðarþrá hmm... what to do ? Ég gat ekki ákveðið svo ég gerði BÆÐI og gott betur en það :!: :haha:

Ég og Binni fórum í útvarpslausa bílnum á góðu dekkjunum með svefnvörnina hahaha og af stað út í landsbyggðina:!: Varð nú að gefa þeim smá breik þegar ég sá hlöllavagnin fyrir utan Já ég sagði BEINT FYRIR UTAN bar 800 :!: Þau eru aðeins að reyna að komast til siðmenningar og every little step counts:!: Það var nú hálftómlegt þarna inni fyrst um sinn og pool borðið er eitt það hrörlegasta og lélegasta sem ég hef spilað á og don't get me started on the kjuð já það er EINN kjuði:!: hahaha ;) En yfir heildina litið var staðurinn almennt flottur :!: Fólkið fór nú að týnast inn og lennti maður á spjalli við hina og þessa úti í smók:!: Augljóslega utanbæjarskvísa svo ég sagðist nú bara vera hér með stelpunum til að kenna Selfyssingum a dansa :lol: hehe Það fyndna var að EKKI EINN EINASTI SELFYSSINGUR NEITAÐI fyrir það neinei það var bara tekið undir :) hahahahahaha ógó fyndið :lol: Crowdið var fínt en eins og á öllum góðum technokvöldum voru nokkrir inni á milli ekki alveg að meika það :!: Það er ALLTAF þessi gamli, þessi með neonhúfuna föst í ´90, Parið sem virtist feimið og JÁ Two stepaði hehe, konan í ULLARKJÓL beið eftir að hún myndi detta niður í ofþornun sökum ofsvita ;) það gerðist ekki :!: & auðvitað að lokum gaurinn sem veit EKKERT hvað hann er að gera svo hann er í face-inu á öllum eða í þessu tilviki að taka BREAKDANS á miðju dansgólfi við Techno hahahahahaha :lol: :lol: Strákarnir voru auðvitað samir við sig og stóðu undir nafni og representuðu :!: Tónlistin var góð stemmingin meira að segja líka en hljóðkerfið var því miður ekki upp á marga fiska :P Tónlistinn datt niður og náði aldrei að toppa mann upp til hæstu hæða :( Þetta var allavega svona þegar ég var þar en ég vona að strákarnir hafi náð að redda málunum því dúndur tónar voru í gangi :haha:

Í fyllstu alvöru þá get ég sagt að þetta hafi nú bara verið mjög skemmtilegt og fróðlegt í leiðinni :!: En ég spáði því áður en ég lagði af stað að um 2 yrði ég so over it og vildi bara komast í bæinn :!: Like clockwork og sem betur fer var Binni í sömu pælingum svo við brunuðum bara beinustu leið í siðmenninguna ;) 



Annar hluti kvöldsins var í downtown Reykjavík :haha: A-list gellan mætti ein niður á Nasa tilbúin að gefa skít í etta :haha: Vildi sko alls ekki missa af glæstu kvöldi með Ástunum og Thelmu & SKÍMÓ:!: :haha: Stelpurnar voru ekkert smá hissa og ánægðar með að stelpan hafi mætt, ætluðu vart að trúa eigin augum :!: 8| :) Ballið varði þó ekki mjög lengi svo næst tók við smá bæjarrölt... Jacobsen, Sólon og Tekið og svo . . .
Það sem setti svip sinn á 101 í nótt voru án efa The Sailors hvort sem þeir voru í eða án búningsins þá voru þeir auðþekkjanlegur og á veiðum:!: :!: :!: :haha: Æðislegt að fylgjast með þessu ... Þeir sem voru án búningsins voru auðvitað á eftir enda er eitthvað sem við stelpur stöndumst sjaldan er það Man in a juniform :!: (Höfum það á hreinu að Lögreglumenn falla EKKI undir þetta ) Ég veit ekki hvað það er en það er bara eitthvað svo skelfilega HOT við einkennisklæddan mann grrrr.... ;) En nóg um slefið og fantasíur hehe... þá áfram með söguna ... Þeir sjóara sem voru það sniðugir að fara á djammið í bláa búningnum með hvítu röndunum voru heldur betur heppnir og gátu nánast valið úr. Það var allavega EKKI KREPPUÁSTAND hjá þeim er kom að kvenfólki. Á einn Sailor voru svona 3-5 stelpur að keppast um athyglina. Svo sá maður þá hvað eftir annað lauma sér út með einni og svipurinn sýndi aðeins eitt :!: Bráð næturinnar var veidd í net :D og leiðin lá beint niður í káetu hahaha :lol: ógó fyndið að fylgjast með þessu tjékkið á því ef þeir eru hér enn næstu helgi :!: 

Well þá er komið gott af þessari ritgerð minni um gærkvöldið og tími til kominn að fá sér að eta ;) 

Audi A-list gella 8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.03.2009 14:59:37 / Audur

1 2 Selfoss ?

Lokasvar !
Jæja er búin að hugsa þetta fram og til baka er farið að svima búin að fara í svo marga hringi. Ég hef komist að niðurstöðu að fara og klára skólann á næstu önn :!: Fara frekar eitthvað eftir útskrift þar sem að þetta er nú síðasta önninn mín :!: Ég er þá allavega búin og ekkert situr eftir á hakanum þá get ég verið alveg frjáls í úglöndunum :!: :haha:

Ég fór í smá heimsókn í gær í Buzz til Sveppó og Láru voða kósý vaknaði svo bara í hádeginu ... awww nice :) eða svona hehe... :lol: er búin að vera að sauma saman lokka :P bleh .. er eila búin og þá er spurningin um kvöldið .. ?
Það er verið að skoða það að láta sig hverfa úr bænum ... hmmm.. þetta er mjög út fyrir mitt Comfortsone enda borgarbarn í húð og hár. Rata ekki einu sinni út úr bænum hehe... :lol: en Exos og Tweak eru að spila á bar 800 á SELFOSSI yeah I KNOW !!! hehehe  þetta er spurning dagsins . 1 2 Selfoss?! :) :D

Well find out later :) hehe

Audí 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.03.2009 15:54:01 / Paradísarbúarnir!

RAINBOWLICIOUS!!

Vá mikið búið að ske frá því síðast ! 
Er búin að vera netlaus :P glatað mál ! Shit hvað maður er alveg eins og lost bara. Lokaður frá umheiminum ! :P well...

Það var valdagur í skólanum í dag sem þýðir að ég þarf að ákveða hvort ég komi á næstu önn eða ekki helst ASAP ! Er farin að hallast að því að klára þetta og fara þá út í janúar frekar en júlí ! ohh veit ekki hvað finnst ykkur ?! HELP ME ! Langar að fara NÚNA helst en svo er hluti af mér sem segir mér bara að klára þetta !!! garg ég veit ekki ...

NE-ways þá var ógó gaman í ammli pabba og síðustu helgar hafa verið mjög skemmtilegar! Dauðsföll hafa reyndar verið 3 innan fjölskyldunnar minnar þessa VIKUNA! dísús þetta kemur alltaf í þrennu ótrúlegt ! En svona er víst lífið :!: :p

Siðustu helgi var mín í SINGSTAR ógisslega gaman :D Thelma og Louise að gera allt crazy :D Svo fór það út í minnismiðadjammið með Rainbowman og allt var ógó RainbowLicious :D hehehe.... ógó skemmtilegt :!: 

Nú er enn ein helgin gengin í garð ætla að skella mér í ropeyoga á ettir ! Já er núna að klára viku nr. 2 og það er ógó næs ! Marr er allavega að læra að slaka á ! svo mikið er víst. Þarf samt að drulla mér áfram í sjúkranudd :p  Verið í bandi elskurnar mínar :!: :haha: 

Audíin 8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.03.2009 12:14:35 / Audur

STEPHAN BODZIN!!!

Shitta, fokka beibí :!: :!: :!: :D

PARTÝIÐ byrjaði hjá Beggu & Didda :P Þar var mikið af frábærum, A-listum :)
Þetta var brjálæðislega skemmtilegt kvöld ! Besta kvöld ársins 2009 það sem komið er af því :haha:
KLESSSSTAN!!!


***

Síðustu helga var svo 50 ammli hjá pabba hennar Júlíu þar sem við Hooligans vorum að þjóna :!: Skemmtilegustu þjónar ever svo mikið er víst hehe...

Í kvöld er svo fimmtugsammli hjá Pabbanum mínum ;) svo þjónarnir fara afur á stjá :D

Until next time

Audi 8)



» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Dagsetning
23. febrúar 2012
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Leitarbox